Nýlegar Breytingar - Leita:

wiki.igo.is

Tilvísanir frá:

Aji

Aji er japanskt orð sem merkir möguleika sem leynast í ákveðnum stöðum. Ekki er endilega krafa að þessir möguleikar verði að veruleika heldur er miklu algengara að þeir stjórni gang leiksins beint eða óbeint. Aji þýðir á japönsku bragð og því er ekki úr vegi að segja að menn fái óbragð í munninn þegar þessir möguleikar þvinga þá til að leika á máta annan en þeir kannski kjósa.

Hér er dæmi sem sést oft í bókum Richards Bozulich. Svartur getur ekki höggvið hvítan í tvennt með a vegna þess aji sem býr yfir.

Reyni svartur það samt fær hann að kenna á og sem eru tesuji og gera hvítum kleift að handsama þrjá svarta steina í horninu. Svörtum væri því hollara að reyna ekki að höggva á hvítan með heldur leika annars staðar; og láta þar með aji stýra sér.

Umrædd staða kemur upp eftir að hvítur gerir innrás? með . Sama hvaða brögðum svartur beitir; dugir honum ekki til að loka hvítan inni og innrásin? heppnast.

Breyta - Yfirlit - Prenta - Nýlegar Breytingar - Leita
Síðu síðast breytt: 22.11.2006, kl. 17:23