|
Deiri talning er hin hefðbundna aðferð til að bera saman yose leiki og er notuð jafnt af atvinnumönnum sem og byrjendum. Hún hefur þann kost að vera einföld í grunninn og hentar þess vegna vel þeim sem læra um yose í fyrsta skipti. Þeir sem hafa lært deiritalningu geta svo byggt ofan á grunnaðferðinni eftir því sem þeir læra meira.
Með deiri talning er reiknað út hversu mörg stig? eru komin undir hverjum leik en ekki verðmæti í svæði. Það er sem sé ekki hægt að segja til um niðurstöðu leiksins með deiri talningu en hún kemur aftur á móti að gagni við að skera úr um hver er besti leikurinn.
Skýringarmyndin hér til hliðar sýnir 9x9? leik þar sem fáir leikir eru eftir. Svartur á leik og hann hefur tvo valmöguleika, A eða B, en hvernig gerir maður svo upp á milli þeirra?
|