Honte er sú hugmynd að sinna veikleikum í manns eiginn stöðu áður en gerð er atlaga að veiklekum í stöðu andstæðingsins. Það er talað um að leikur sé honte þegar átt er við að hann hafi áhrif á framvindu leiksins með því að verja veikleika sem annars væri fjötur um fót, t.d. þegar veikur hópur er varinn sem gerir ákveðna innrás sem annars væri áhættusöm, auðvelda.