|
Hoshi sem merkir stjarna eða pláneta er annar vinsælasti hornaleikurinn. Sá sem leikur hoshi í stað komoku? skeytir minna um svæðið í horninu en áhrif út á við. Markmiðið er að virkja þessi áhrif til að gera betur en annars. Í þessu felst meiri áhætta og kannski líka dirfska þar sem vísari leiðir til að umkringja svæði eru gefnar upp á bátinn fyrir von um meiri hagnað.
Í öðru samhengi þykir það jákvætt, jafnvel aðdáunarvert að tefla á þennan máta. Það er sennilega fyrir þennan eiginleika sem forgjöf? er gefinn í hoshi steinum. En hversu aðdáunarverð sem slík "áhættusækni" kann að vera þá er það af þessari sömu ástæðu sem komoku? er vinsælli en hoshi.
|
|
Yfirlit yfir joseki með fyrsta leik á hoshi má finna í Joseki/Hoshi.