Nýlegar Breytingar - Leita:

wiki.igo.is

Tilvísanir frá:

Komi

Komi; nokkurs konar uppbótarstig, er regla sem komið var á í Go á fyrrihluta síðustu aldar. Vegna þess að svartur byrjar leikinn fær hann ákveðið forskot á hvítan og er uppbótarstigunum er ætlað að jafna það. Hversu mörg stigin eru sem hvítur fær er ákveðið áður en leikur hefst.

Miklar spekúlasjónir liggja bakvið hversu hátt komi skal vera, svo sanngjarnt sé. Lengi vel var það 5,5 stig í flestum löndum. Síðustu ár hafa menn uppgötvað að 5,5 stig er ekki nægjanleg uppbót; svartur vinnur oftar samkvæmt tölfræðinni þegar komi er einungis 5,5 stig. Því hafa menn nú víðast hvar hækkað komi í 6,5 og sumstaðar upp í 7,5 stig. Hér skal ósagt látið hvað sé rétt komi; einungis að 6,5 stig hljóta að vera ásættanleg í flestum tilvikum.

Breyta - Yfirlit - Prenta - Nýlegar Breytingar - Leita
Síðu síðast breytt: 26.09.2007, kl. 01:04