Nýlegar Breytingar - Leita:

wiki.igo.is

Tilvísanir frá:

Svæði

Í Go er aðalmálið að ná undir sig svæði; í lokin er það jú sá sem umlykur meira svæði og handsamar fleiri fanga sem vinnur. Svæði er einfaldlega þeir auðu reitir sem steinar umlykja.

Þegar rætt er um joseki er oft talað um að menn deili milli sín svæði og áhrifum?; annar hrifsar svæði meðan hinn byggir upp áhrif. Hér til hliðar má sjá mynd af algengu joseki eftir að hvítur gerir innrás á sansan undir svörtum steini á hoshi. Svæðið er auðtalið; 10 reitir, eða 10 stig, svo gott sem örugg. Nýti svartur myndarlegan vegginn? sem hann byggði upp í staðinn til að innlima 10 stig eða fleiri eru skiptin jöfn, og jafnvel svörtum í hag.

Breyta - Yfirlit - Prenta - Nýlegar Breytingar - Leita
Síðu síðast breytt: 08.12.2006, kl. 00:13