Nýlegar Breytingar - Leita:

wiki.igo.is

Tilvísanir frá:

Hoshi

Hoshi sem merkir stjarna eða pláneta er annar vinsælasti hornaleikurinn. Sá sem leikur hoshi í stað komoku? skeytir minna um svæðið í horninu en áhrif út á við. Markmiðið er að virkja þessi áhrif til að gera betur en annars. Í þessu felst meiri áhætta og kannski líka dirfska þar sem vísari leiðir til að umkringja svæði eru gefnar upp á bátinn fyrir von um meiri hagnað.

Í öðru samhengi þykir það jákvætt, jafnvel aðdáunarvert að tefla á þennan máta. Það er sennilega fyrir þennan eiginleika sem forgjöf? er gefinn í hoshi steinum. En hversu aðdáunarverð sem slík "áhættusækni" kann að vera þá er það af þessari sömu ástæðu sem komoku? er vinsælli en hoshi.


Hvítur nálgast með kakari á , svartur verst með og hvítur rennir sér inn í hornið. Svartur lokar horninu og hvítur tryggir hópinn með hiraki? til . Þetta er sennilega algengasta joseki í heimi.

Báðir hópar eru öruggir, þetta er dæmi um fullkomlega jöfn skipti.

Svartur getur leikið eins og hér. Þessi leikur er meira í anda hoshi. Eftir hvítan leikur svartur stundum tenuki en svartur er eftir sem áður mjög mikilvægur.

Svartur hefur umkringt meira svæði en áður, en í gote. Það er erfitt að gera upp á milli þessarar stöðu og þeirrar fyrri.

Ef hvítur hefur stöðu í hægra horninu er ef til vill ákjósanlegt að leggja grunn að moyo með því að leika á miðja hliðina. Annars gæti hvítur hafa leikið til að forðast að eyðileggja þá möguleika sem eru á innrás inn í hornið. Þetta er dæmi um spilamennsku sem heldur möguleikunum opnum.

Hvort sem er þá hefur hvítur lagt áherslu á hliðina umfram svæðið í horninu. Seinna þegar hvítur vill styrkja stöðuna má búast við því að hann velji A, svartur getur þá svarað með B.

Hasami á gerir hvítum erfitt um vik annað en að leika innrás í hornið. Ef hvítur er fullur baráttumóð? stekkur hann upp með . Svartur verst með en þá stendur það upp á hvítan að velja framhaldið, A til D eru algengir möguleikar.

C er tormeltur leikur sem hefur sitt brúk í vissum stöðum. A, B og D hinsvegar eru áhugaverðir leikir sem líta til þess að ráðast gegn .

Hvítur getur líka gert innrás? í hornið eftir . Svartur lokar? fyrir með áður en hvítur ýtir með . Svartur er réttur leikur, hane væri of áhættusamt. Hvítur skiptir fyrir áður en hann styngst út með .

Hvítur hefur tekið hornið í góðu formi?. Svartur fær áhrif út á hliðina, möguleika á framhaldsleikjum? og sente en hann vantar upp á þykkleika?. Þetta eru jöfn skipti, og þó; það gæti sýnst sem hvítur hafi fengið bróðurpartinn þar sem hans hlutur er öllu áfestanlegri og þar með auðveldara að meta hann að umfangi. Samt er hlutur svarts engu minni þó hann felist mestur í mögulegum ávinningi.

Ef svartur hefur merkta steininn getur hann lokað? með . Þetta er tæpast joseki enda svartur öllu stórtækari.

Þó svartur hafi byggt vegg? þá er hann ekki þykkur?, áhrif svarts eru takmörkuð af þessum sökum. Hinn eiginlegi veikleiki? er sýndur hér til hliðar.

Hvítur er aji í stöðunni. Svartur gefur ekkert eftir og til fylgja á eftir. Núna eru a og b miai og hvítur þar með öruggur.

Hvítur er prufuleikur?. Ef hvítur hefur valið góða tímasetningu til að leika er svartur tilneyddur að gefa eftir með án þess að það sé honum um geð. Eftir það getur hvítur tengt undir? með A.

Þegar svörtum hentar að hvítur stökkvi upp með er ákjósanlegt að leika hasami með . Svartur verst svo með eða A og hvítur skiptir fyrir áður en hann styrkir hópinn með því að renna sér til .

Svartur hefur umkringt umtalsvert svæði með , ef það þóknast honum ekki á hann auðvelt með að taka sente. Á meðan hefur hvítur fengið örugga fótfestu í þessu horni.

Svartur velur að gefa kost á A frekar en B. Það er algengt að hvítur komi sér hjá því að fylgja áætlun andstæðingsins með leik eins og .

Stóra keima, sem svar við hvítum á A eða sem shimari? leggur áherslu á ytri áhrif og er mjög í anda hoshi. Þetta er hin hefðbundna hoshi shimari? þó vinsældir hennar hafi dalað á 20. öldinni.

Þegar hvítur gerir innrás beint undir hoshi steininn deyr svartur ekki ráðalaus. Hann lokar? með , svo leikur hann hane tvisvar með - og þegar upp er staðið er hornið ennþá svart.

Þegar hvítur hefur minni áhuga á horninu getur hann leikið á hliðina. Þar sem stóra keima er frekar laus? leikur hvítur yfirleitt alla leiðina aftur á . Vegna þess hve hornið er auðsótt fyrir hvítan lokar svartur því með , styrkir svo hvíta hópinn. er talinn vera honte.

Breyta - Yfirlit - Prenta - Nýlegar Breytingar - Leita
Síðu síðast breytt: 04.10.2007, kl. 00:25