Nýlegar Breytingar - Leita:

wiki.igo.is

Tilvísanir frá:

Sansan

Sansan nefnist reiturinn þar sem 3. línur tveggja hliða koma saman. Japanska orðið san þýðir þrír og því er eiginleg merking nafnsins: 3-3. Sansan er fremur lágur sem fyrsti leikur og einblínir á svæði fremur en áhrif? og er því erfiðari að þróa meðfram hliðunum og út í miðju.

Stór kostur er hinsvegar að með sansan má líta á hornið sem útkljáð; ekki þarf að bæta við öðrum leik til að girða hornið af, eins og raunin er til dæmis með Hoshi eða Komoku?. Hann er því heppilegur vilji menn hraðaskreiða opnun, það er afgreiða eitt horn til að skjótar á annan stað á borðinu.


Vegna þess að leik á sansan er svo einsýnt á hornsvæðið afræður andstæðingurinn oft að takmarka hann algjörlega við hornið, og sækjast fremur eftir áhrifunum? fyrir utan. Þannig er algengt að sjá eins og hér.

Hér má sjá grunnútgáfu af þessu joseki. Hvítur getur ákveðið að leika a næst en stundum reynist sá leikur of hægfara og því velur hvítur oft að leika tenuki fremur en a. Að sama skapi getur svartur tekið sente og leikið annars staðar á undan hvítum.

Sleppi svartur á fyrri myndinni þarf hann að vera viðbúinn hér, sem er einkar stór. Með honum gerir hvítur sig líklegan til að sölsa undir sig svæði á botninum um leið og hann heftir framgöngu svarts úr horninu í þá átt.

Hér gefur að líta annað joseki. Eftir hefur svartur um a og b að velja sem næsta leik. Hvítur hefur á móti úr c og d að velja til að mynda voldugan vegg? gegnt annarri hvorri hliðinni. a og b eru því miai.


Hvítur má passa sig á að leika ekki í blindni, eins og í þessu klassíska dæmi. Hér stekkur svartur áfram með og notar steinana til að setja þrýsting á hvítan sem er alls ekki viss um að hann geti notað og til nytsamlegra hluta.

Mun heppilegra væri að leika létt, eins og með hér.

Framhaldið gæti litið einhvern veginn svona út og hvítur endað með tiltölulega gott form, nánast öruggt um líf.


Ef að hvítur kýs ekki að nálgast hornið eins og hér að ofan er algengast að sjá nálgun eins og og þá sem svar. a og b eru þyngri leikir en og ekki Joseki. Eins með c; hann er þyngri í vöfum en en þó ekki slæmur leikur í sumum tilvikum sé hann í samræmi við restina af borðinu. Eftir og getur hvítur leikið aggressíft á e með það að augnmiði að leika á f og tengja við eða e. Hvítur getur líka tengt 1 upp með hliðinni; allt eftir aðstæðum.

Hafi svartur tækifæri til að leika aftur á undan hvítum í horninu getur hann girt hornið af?. eða d eru heppilegustu leikirnir til þess.

Breyta - Yfirlit - Prenta - Nýlegar Breytingar - Leita
Síðu síðast breytt: 02.11.2007, kl. 22:16